Við FRAMarar héldum í dag þriðja súpufund vetrarins. Mætingin í dag var til fyrirmyndar. Fengum góða gesti í heimsókn en meðlimir í “FIT í Fram” sem leikfimi fyrir eldri íbúa hverfisins og í raun alla sem hafa áhuga á því að taka þátt í skemmtilegri hreyfingu, mættu í súpuna. Vona að þeim hafi líkað vel og komi kannski aftur ?
Okkur telst til að það hafi verið rúmlega 50 menn og konur sem gæddu sér á þessari líka fínu súpu. Súpan hans Ödda kokks var mjög góð.
Það er alltaf gaman að sjá alla þessa FRAMarar og núna íbúa hverfisins á öllum aldri rifja upp gamla daga og ræða málefni dagsins. Margt að ræða og stemmingin góð í dag.
Þetta var síðasta súpan á þessu ári, við tökum svo upp þráðinn á nýju ári.
Næsti súpufundur verður fimmtudaginn 26. jan. 2023.
Við FRAMarar þökkum öllum þeim sem mættu í dag, gaman að fá ykkur í heimsókn, erum alltaf mjög þakklát fyrir hvað þessi uppákoma hefur heppnast vel.
Takk fyrir komuna og sjáumst í janúar.
ÁFRAM FRAM