Knattspyrnufélag Fram og Ölgerðin undirrituðu á dögunum nýjan samning um áframhaldandi samstarf næstu þrjú árin. Áfram verður boðið upp á drykki og vörur frá Ölgerðinni á heimaleikjum Fram.
Á myndinni eru Sigurður Ingi Tómasson, formaður FRAM og Perla Ingólfsdóttir sölu og markaðsstjóri hjá Ölgerðinni. Gaman að segja frá því að Perla er af Framættum, faðir hennar, Ingólfur Óskarsson lék lengi vel með Fram og er af mörgum talinn einn bestu handknattleiksmaður sem við Íslendingar höfum átt.