Steinunn Björnsdóttir, fyrirliði meistaraflokks kvenna í handbolta hjá Fram, hefur skrifað undir nýjan samning við félagið og gildir nýr samningur hennar til 2025. Steinunn er uppalinn Frammari og hefur undanfarin ár verið fastamaður í íslenska landsliðinu auk þess að vera einn mikilvægasti leikmaður Fram. Steinunn hefur á tíma sínum hjá Fram verið gríðarlega sigursæl, lyft ófáum titlum og er hvergi nærri hætt.
„Fram er mitt félag og við stöndum á spennandi tímamótum núna. Liðið okkar hefur tekið miklum breytingum og við erum að opna liðið fyrir ungum og efnilegum leikmönnum. Það verður mjög gaman fyrir eldri og reynslumeiri leikmenn eins og mig, að fá inn ferskar ungar stelpur sem munu svo taka við keflinu þegar fram líða stundir. Þetta eru svakalega spennandi tímar og ég hlakka mikið til framhaldsins.“ segir Steinunn Björnsdóttir
„Það eru núna kynslóðaskipti í kvennaliði Fram. Það var því mikilvægt fyrir okkur breyta hópnum en að sama skapi sérstaklega mikilvægt líka að halda í þá leikmenn sem við viljum móta nýtt lið eftir. Þar eru leikmenn eins og Steinunn fremstir í flokki, því hún hefur öll þau gildi, kraft og hæfileika sem við viljum að yngri leikmenn stefni að og tileinki sér. Það er því einstakt ánægjuefni að Steinunn skuli nú hafa skuldbundið sig til að fara í þessa vegferð með félaginu sínu.“ segir Einar Jónsson þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Fram.