fbpx
Dómarar1

Framarar í dómgæslu um helgina

Dómaranámskeið í formum (Poomsae) var haldið nú um helgina á vegum Taekwondosambands Íslands. Sambandið stendur nú fyrir átaki í dómaramálum og er yfirdómari danska sambandsins í Poomsae, Jesper Pedersen, fenginn hingað til lands reglulega til að halda námskeið með það að markmiði að byggja upp dómarastarfið hér á landi.

Fram átti nokkra þátttakendur á námskeiðinu að þessu sinni eins og sjá má á meðfylgjandi mynd en hana prýða þau Rúdolf Rúnarsson, Trausti Bjartmarsson, Eva Þóra Hauksdóttir og Bjarki Kjartansson. Á myndina vantar Leevi Kaunio Sveinbjörnsson.

Það frábært tækifæri fyrir okkar fólk að fá þjálfun með þessum hætti og gaman að sjá þau í lykilhlutverkum á móti helgarinnar.

Share this post

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!