Kristrún Steinþórsdóttir hefur skrifað undir nýjan 2 ára samning við Fram. Kristrún hefur leikið með Fram frá árinu 2019 og verið burðarás í liðinu þann tíma. Kristrún er öflug skytta, sterkur varnarmaður, reyndur og öflugur leikmaður og mikill fengur fyrir félagið að hún skuli hafa ákveðið að framlengja samning sinn. Við fögnum því að hún taki slaginn með okkur og ljóst að Fram liðið mun vera sterkt í vetur.
„Ég þekki Fram vel og kann vel við mig hjá félaginu. Þegar að úrslitin í deildinni lágu fyrir kom ekkert annað til greina en að vera hér áfram. Liðið er sterkt og ég sé fyrir mér að við munum geta átt mjög gott tímabil.“ segir Kristrún
„Kristrún er ógnar sterkur varnarmaður, góður liðsfélagi og mikilvægur hlekkur í liðinu okkar. Að halda henni er mjög mikilvægt og það gleður mikið að hafa hana áfram hjá okkur.“ segir Einar Jónsson þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Fram.