Knattspyrnudeild Fram auglýsir eftir þjálfurum yngri flokka
Knattspyrnudeild Fram auglýsir eftir þjálfurum í 4. karla og 4. og 3. flokki kvenna.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Einnig auglýsir Fram eftir þjálfurum fyrir næsta tímabil.
Knattspyrnudeild Fram leitar að öflugum og áhugasömum þjálfurum yngri flokka til starfa hjá félaginu næsta tímabil. Viðkomandi þjálfarar heyra undir yfirþjálfara knattspyrnudeildar. Við hvetjum konur jafnt sem karla til að sækja um.
Starfssvið
- Umsjón með skipulagningu æfinga og leikja hjá viðkomandi flokki eða flokkum
- Umsjón með þátttöku í mótum viðkomandi flokks eða flokka
- Samskipti við foreldra í gegnum Sportabler
- Samskipti við foreldraráð viðkomandi flokka vegna skipulagningu móta og/eða keppnisferða
- Samstarf við þjálfara félagsins
- Tryggja að áherslur knattspyrnudeildar Fram séu uppfylltar á æfingum, leikjum og mótum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Þjálfaramenntun skilyrði eða áætlun um að mennta sig sem þjálfari
- Góðir samskiptahæfileikar
- Jákvæðni, drifkraftur og frumkvæði
- Áhugi á að takast á við nýjungar og margvísleg verkefni
- Almenn tölvufærni og hæfni til að tjá sig í rituðu og töluðu máli
- Hreint sakavottorð er skilyrði
Nánari upplýsingar veitir steinar@fram.is