Lúðvík Gunnarsson, landsliðsþjálfari Íslands U16 karla, hefur valið leikmannahóp sem kemur saman til æfinga í Miðgarði dagana 17.- 19. janúar n.k.
Viktor Bjarki Daðason er fulltrúi Fram í hópnum í þetta sinn, en hann spilaði sína fyrstu leiki með meistaraflokki Fram síðasta sumar þrátt fyrir að vera fæddur árið 2008 og því aðeins 15 ára.
Til hamingju Viktor Bjarki og gangi þér vel!