fbpx
Góð vefur

Glæsileg súpa í dag

Við FRAMarar héldum í dag annan súpufund vetrarins. Mætingin í dag var bara mjög góð.

Okkur telst til að það hafi verið  rúmlega 40  menn og konur sem gæddu sér  á þessari líka fínu kjúklingasúpu.

Það er alltaf gaman að sjá alla þessa FRAMarar og íbúa hverfisins á öllum aldri rifja upp gamla daga og ræða málefni dagsins. Margt að ræða og stemmingin góð í dag.

Það var haft á orði í dag að mikið af sögum dagsins hefðu verið gamlar sögur í
nýjum búningi sem væri skemmtilegt en það kæmu alltaf nýjar sögur inn á milli sem væri ómetanlegt.

Næsti súpufundur verður fyrir páska ????

Við FRAMarar þökkum öllum þeim sem mættu í dag, gaman að fá ykkur í heimsókn, erum alltaf mjög þakklát fyrir hvað þessi uppákoma hefur heppnast vel.

Takk fyrir komuna og sjáumst í febrúar. ÁFRAM FRAM

Share this post

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!