fbpx
3 fl. ka. Bikarmeistari 2023.

FRAM á þrjú lið í Bikarúrslitum um helgina

Bikarúrslit  HSÍ 2024
Yngri flokkar FRAM

Það verður sannkölluð hátið hjá okkur í FRAM á um helgina, því þá leikum við þrjá úrslitaleiki í bikarkeppni HSÍ.  Leikirnir fara fram í Laugardalshöll en þar verður umgjörðin glæsileg og engu til sparað.
Það er alltaf draumur hvers leikmanns að komast í höllina og leika bikarúrslitaleik og þessir leikir eru þeir leikir sem allir yngri leikmenn vilja prufa að leika áður en þeir fara á stórasviðið með meistaraflokkunum.
Við FRAMarar eigum eins og áður sagði 3 leiki í Höllinni á laugardag og sunnudag.
Leikið verður sem hér segir:

Laugardagur 9. mars

Kl. 10:30          Úrslitaleikur í 6. fl.kv Eldri.  FRAM –  KA/Þór í Laugardalshöll

Sunnudagur 10. mars

Kl. 13:30          Úrslitaleikur í 3. fl.kv  FRAM – Valur  í Laugardalshöll
Kl. 15:50
          Úrslitaleikur í 3. fl.ka  FRAM – KA  í Laugardalshöll

ÞETTA VERÐA ALLIR AÐ SJÁ !

Hvetjum alla FRAMarar til að mæta í Höllina um helgina, hvetja krakkana okkar og styðja við bakið þessum glæsilegu fulltrúum sem við eigum í  úrslitaleikjum Bikarkeppni HSÍ.  
Það verður
flott umgjörð í Höllinni, leggjumst öll  á eitt til að helgin verði sem glæsilegust fyrir okkur FRAMara.

Þeir sem ekki komast í Höllina er bent á sjónvarp Símans en þeir munu sýna beint frá öllum leikjunum í Höllinni um helgina. Bikarveisla yngri flokka í beinni útsendingu | Fréttir | Forsíða | Síminn (siminn.is)

MÆTUM OG HVETJUM

UNGA FÓLKIР OKKAR TIL SIGURS.

Share this post

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!