Kristrún Steinþórsdóttir hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við Fram.
Kristrún hefur spilað með meistaraflokki kvenna frá 2019 og er í dag einn af burðarstólpum liðsins. Hún hefur reynst liðinu mikilvæg enda tekið þátt í öllum deildarleikjum liðsins í vetur sem miðjumaður og skytta, og skorað þar 36 mörk. Þá er hún jafnframt öflugur varnarmaður. Kristrún er reyndur leikmaður og góð fyrirmynd fyrir yngri leikmenn.
„Það er ánægjulegt að framlengja samning við Kristrúnu. Hún er mikilvægur hlekkur í öflugu liði Fram og við munum njóta góðs af því að hafa hana áfram í liðinu. Hún hefur spilað mikilvægt hlutverk í þeim árangri sem liði hefur náð á tímabiliu,“ segir Einar Jónsson, þjálfari meistaraflokks kvenna.