Helgina 8. til 9. júní fór fram markmannsnámskeið í Úlfarsárdalnum á vegum Markmannsakademíu Asmir Begovic. Rúmlega 70 krakkar víðsvegar af landinu mættu í Úlfarsárdalinn auk markmanna sem komu alla leið frá Færeyjum og Noregi.
Veðrið í Dalnum tók vel á móti gestum og lék við markmennina sem bættu færni sína og þekkingu undir öruggri handleiðslu Asmir og þjálfarateymis hans. Ekki spillti það gleðinni þegar Rúnar Alex markmaður FCK kom og kíkti á hópinn á laugardeginum.
Æfingarnar voru vandaðar, markvissar og krefjandi og fagmennskan í fyrirrúmi. Greinilegt var að það hvatti krakkana áfram sem lögðu sig öll fram og nýttu námskeiðið vel til að bæta sig.
Ekki var annað að sjá en markmenn framtíðarinnar færu sáttir heim að lokinni vel heppnaðri og lærdómsríkri helgi.
Myndir frá námskeiðinu eru hér:https://framphotos.pixieset.com/2024-begovicmarkmannsnmskei/
@toggipop