Til leiks er mættur varnarmaðurinn ungi og öflugi Arnar Daníel Aðalsteinsson!
Knattspyrnudeild Fram hefur fest kaup á Arnari frá Gróttu og skrifar hann undir tveggja ára samning við félagið. Þrátt fyrir ungan aldur hefur Arnar spilað 75 leiki í meistaraflokki og einnig hefur hann verið fulltrúi Íslands í 7 yngri landsleikjum
Arnar er eins og er í námi við Rutgers háskóla í Bandaríkjunum og kemur því til móts við liðið á sumrin.
Bjóðið hann velkominn í Dal Draumanna!