Leikmenn hafa verið valdir til að taka þátt í æfingu í Hæfileikamótun N1 og KSÍ fyrir stúlkur á höfuðborgarsvæðinu.
Æfingin fer fram fimmtudaginn 27. febrúar næstkomandi undir stjórn Margrétar Magnúsdóttur, þjálfara í Hæfileikamótun.
Eyrún Björg Benediktsdóttir af eldra ári 4.flokks er fulltrúi Fram í hópnum að þessu sinni.
Til hamingju Eyrún og gangi þér vel!