fbpx
Gríptu kemur út 13. mars (59)

Haraldur tekur við meistaraflokki kvenna

Haraldur Þorvarðarson hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Fram og mun stýra liðinu á næsta keppnistímabili.

Haraldur hefur verið aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla síðastliðin fjögur ár. Samhliða því hefur hann stýrt U-liði og 3. flokk karla hjá Fram og stýrði U-liði félagsins til sigurs í Grill 66-deildinni í fyrravor. Hann er einn af reynslumestu þjálfurum hjá Fram og hefur áður stýrt fjölmörgum yngri flokkum hjá bæði karla- og kvennaliðum félagsins, verið yfirþjálfari yngri flokka og átt stóran þátt í þeirri öflugu uppbyggingu sem hefur átt sér stað í handknattleiksdeild félagsins.

Sjálfur á Haraldur að baki farsælan feril sem leikmaður hjá Fram auk þess sem hann spilaði í Þýskalandi um skeið.

Arnar Pétursson og Roland Eradze munu einnig vera í þjálfarateymi meistaraflokks kvenna fyrir næsta tímabil.

Jafnframt þökkum við Rakel Dögg Bragadóttur fyrir gott starf í þágu félagsins og óskum henni alls hins besta í framtíðinni.

Share this post

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!