fbpx
Dómarafélag banner

Stofnfundur Dómarafélags Fram

Í kvöld kl. 20:15 verður haldinn formlegur stofnfundur Dómarafélags FRAM. 

Tilgangur félagsins er að vera sameiginlegur vettvangur fyrir þá sem annast dómgæslu og tengd störf í knattspyrnu fyrir FRAM. 

Markmiðið  er að fjölga dómurum í störfum fyrir FRAM, að bæta gæði og auka fagmennsku í dómgæslu hjá yngri flokkum félagsins. Að skapa vettvang fyrir þá sem hættir eru að spila en vilja áfram taka þátt í leiknum.

Dómarafélagið er fyrir alla sem hafa áhuga á dómaramálum í sinni víðustu mynd, hvort sem heldur er með því að dæma, vera aðstoðardómarar eða þá að taka að sér önnur störf sem lúta að dómgæslu hjá félaginu.

Fundurinn í kvöld er öllum opinn og hvetjum við alla sem vettlingi geta valdið að mæta.  Það er ljóst að enginn leikur fer fram án dómara og því mikilvægt að standa sem best að dómaramálum í félaginu okkar.

Share this post

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!