Ómar Ingi Guðmundsson, landsliðsþjálfari Íslands U15 karla, hefur valið leikmannahóp til úrtaksæfinga sem kemur saman dagana 12. og 13. maí 2025. Æfingarnar fara fram á Avis-vellinum í Laugardal.
Við Framarar erum stoltir af því að eiga einn fulltrúa í þessu æfingahópi Íslands U15 en Gísli Þór Árnason var valinn frá Fram að þessu sinni.
Gísli Þór Árnason Fram
Gangi þér vel Gísli Þór.
ÁFRAM FRAM