Handknattleiksdeild Fram vill færa Steinunni Björnsdóttur og Þóreyju Rósu Stefánsdóttur innilegar þakkir fyrir ómetanlegt framlag þeirra til félagsins og íslensks handbolta.
Þær stigu sín síðustu skref á keppnisvellinum á dögunum og skilja eftir sig djúp spor – bæði innan vallar sem og utan. Báðar hafa þær verið lykilleikmenn í meistaraflokki undanfarin ár og burðarásar í uppbyggingu og mótun liðsins. Þær hafa verið fyrirmyndir fyrir yngri leikmenn og sýnt einstakan metnað, samheldni og baráttuanda í gegnum árin.
Við hjá Fram erum einstaklega þakklát fyrir að hafa fengið að njóta hæfileika þeirra og persónuleika, og óskum þeim báðum velfarnaðar í því sem framtíðin ber í skauti sér – hvort sem er innan handboltans eða utan hans.
Takk fyrir allt Steinunn og Þórey Rósa
