Knattspyrnudeild FRAM býður alla stuðningsmenn velkomna á stuðningsmannakvöld í VIP-salnum fimmtudaginn 11. september kl. 18:00.
Á boðstólum verða bjór og hamborgarar og mun Agnar Þór Hilmarsson veislustýra kvöldinu.
Dagskráin:
– Ávarp formanns, Guðmundar Torfasonar
– Þjálfarar og leikmenn meistaraflokks karla og kvenna mæta og spjalla við stuðningsmenn
– Happdrætti – árituð FRAM treyja
– Pub-Quiz!
– Kl. 20:15 hefst leikur Úlfanna gegn Skallagrími á Lambhagavelli – leikur um 3. Sæti 5. deildar. Úlfarnir eru venslalið Fram og skipaðir uppöldum Frömurum.
Í hálfleik verður dregið í happdrætti og í vinning er árituð FRAM-treyja með áritunum allra leikmanna.
Framundan eru tveir gríðarlega mikilvægir leikir í vikunni. Við hvetjum alla FRAM-ara til að fjölmenna, bæði á stuðningsmannakvöldið og á völlinn, og sýna liðum okkar þann kraft sem aðeins okkar fólk getur skapað.
FRAM býður stuðningsmönnum í rútur á komandi útileiki:
Stjarnan – FRAM föstudaginn 12. september kl. 18:00: Skráning þarf að lágmarki 20 manns fyrir miðnætti fimmtudaginn 11. september.
FH – FRAM sunnudaginn 14. september kl. 14:00: Skráning þarf að vera að lágmarki 20 manns fyrir kl. 12:00 á hádegi laugardaginn 13. september.
Skráning í rútu á dadi@fram.is
Fjölmennum og sýnum okkar liðum stuðning á útivelli í þessum gríðarlega mikilvægu leikjum!
ÁFRAM FRAM!
