Eins og fram hefur komið í leikskýrslum fréttaritara Framsíðunnar gengur leið 18 nánast beint frá heimili hans í Hlíðunum að Lambhagavellinum í Dal draumanna. Þessi staðreynd hefur minnkað kolefnisfótspor fréttaritarans umtalsvert á liðnum árum og ýtt undir bjórdrykkju á leikjum. Loftslagsmarkmið 1 : lifrin í fréttaritaranum 0.
Í dag lagði fréttaritarinn snemma af stað í Úlfarsárdalinn á risastórum Volvo. Skjaldsveinninn slóst í hópinn á Grensásveginum. Nú væri mikið í húfi: Fram yrði að sækja sigur gegn gestunum frá Akureyri í slagnum um annað sætið á Íslandsmótinu. Í fyrri leik liðanna nyrðra höfðu Þórsarar varist eins og andsetnir og uppskorið sigur þvert á öll rök og skynsemi. Það mætti ekki endurtaka sig.
Fréttaritarinn og Valur Norðri mættu glaðværir í fínumannaboðið þegar um 40 mínútur voru í leik. Á boðstólum voru SS-pylsur soðnar í potti! Og þar sem mótherjarnir voru Akureyringar var boðið upp á fjölskrúðugra meðlæti en tíðkast sunnan heiða: súrar gúrkur, kartöflusalat og rauðkál. Menningarnám eða ekki – fréttaritarinn tók vel til matar síns og sá ekki eftir því fyrr en við fyrsta ropa!
Byrjunarliðin höfðu verið kynnt á netinu og þar bar eitt og annað til tíðinda. Viktor stóð milli stanganna og fyrir framan hann voru Kennie, Sigurjón og Þorri. Í bakvörðunum voru nú Halli og Kristófer. Ægir aftastur á miðjunni með Frey fyrir framan sig sem og Tibbling sem loksins kom aftur inn í byrjunarliðið. Fred og Vuk frammi. Atli er enn meiddur og utan liðs og þeir Már og Jakob báðir á bekknum.
Fréttaritarinn og Skjaldsveinninn færðu sig niður í stúkuna og hittu þar afmælisbarnið Rabba trymbil. Hnífsdalstrymbillinn hafði tekið að sér að berja húðir og sat innan um Geiramenn nokkrum röðum framar. Það var vindnæðingur sem aldrei þessu vant sneri inn í stúkuna. Fram hóf leik gegn býsna sterkum vindi.
Leikurinn hófst og Framarar byrjuðu nokkuð líflega. Vuk og Fred léku sín á milli og skutu svo naumlega framhjá strax á fjórðu mínútu og strax fjórum mínútum síðar sópaði Freyr boltanum yfir markið eftir fínan undirbúning frá Fred… Eftir þessar fyrstu efnilegu mínútur drógu Framarar sig aftar á völlinn og gestirnir fengu færi á að koma sér inn í leikinn. Þrjú hálffæri Þórs á skömmum tíma litu dagsins ljós og í einu þeirra skoppaði boltinn oná slá Frammarksins eftir það sem virtist sakleysisleg fyrirgjöf.
Var sama kæruleysið og í Keflavík í síðasta leik að taka völdin hjá Frömurum? Stuðningsmönnunum á pöllunum stóð ekki á sama. En þá kom Hornarfjarðarmáninn til bjargar. Þegar fyrri hálfleikur var nákvæmlega hálfnaður náði Freyr, sem hafði verið langkvikastur okkar manna, boltanum af einum Þórsvarnarmanninum í öftustu víglínu og skoraði auðveldlega, 1:0. Við markið hrundi sú litla mótspyrna sem gestirnir höfðu sýnt fram að því.
Tveimur mínútum eftir markið var stuggað við Vuk, sem vildi víti, en samstuðið var hvorki mikið né merkilegt. Rétt í kjölfarið prjónuðu þeir Fred og Freyr sig í gegnum Akureyrarvörnina en frábær Þórsmarkvörðurinn varði vel frá Frey. Eftir hornspyrnuna í kjölfarið þrumaði Kristófer rétt framhjá.
Næstu mínútur buldu sóknir Framara á Þórsvörninni þar sem þeir Kristófer og Ægir komust báðir í góð færi. Fred þumaði í stöngina á 36. mínútu og boltinn hrökk af baki markvarðarins og í horn. Kristófer tók hornspyrnuna og sendi beint á kollinn á Ægi sem stóð einn og óvaldaður og skoraði 2:0. Skömmu síðar fiskaði Tibbling aukaspyrnu á hættulegum stað sem Kristófer tók. Þrumuskot hans var slegið frá marki þar sem Freyr kom aðvífandi en skaut rétt yfir markið. Mínútu síðar var Halli nánast búinn að prjóna sig í gegnum þétta vörn gestanna en var stöðvaður á síðustu stundu.
Fréttaritarinn, Rabbi og skjaldsveinninn voru farnir að tala drýgindalega um markamet og rifja upp 8:0 sigurinn á Þór í B-deildinni 1996 þegar gestirnir minnkuðu muninn þvert gegn gangi leiksins nánast í lokaspyrnu fyrri hálfleiks eftir kæruleysislegt úthlaup Viktors. Svekkjandi mark en Framarar hafa sterk bein og héldu saman í Bar8una til að hlaða batteríin.
Yfirburðir Framara héldu áfram í seinni hálfleik. Ægir fékk fyrsta dauðafærið eftir fjögurra mínútna leik en náði ekki að teygja sig í boltann í lokin. Á 54. mínútu léku þeir Vuk og Kristófer sig í gegnum vörn Þórs, sendi fyrir markið og Halli kom aðvífandi á fjær og skoraði 3:1. Þremur mínútum síðar minntu gestirnir þó á að þeir væru ekki dauðir úr öllum æðum með óvæntu stangarskoti uppúr engu. Þegar hálftími var til leiksloka veittu Framarar röthöggið þegar Halli skoraði sitt annað mark með skalla eftir góðan undirbúning frá Fred.
Um það leyti sem blásið hefði verið til vatnspásu á leikjum HM gerðu Rúnar og Helgi fyrstu skiptingarnar þar sem Róbert og Byström komu inná fyrir Fred og Vuk. Svarfdælingurinn okkar var ekki lengi að ná stoðsendingu eftir að hafa lagt boltann fyrir á Kristófer sem sem skoraði 5:1 á 71. mínútu. Skömmu síðar var Ægir Jarl tekinn af velli fyrir Badda. Skömmu síðar gerði þjálfarateymið lokabreytinguna þegar þeir Már og Israel komu inná fyrir Tibbling og Kristófer. Án þess að maður vilji gagnrýna yfirstjórnina eftir stórsigur spyr maður sig samt hvort stórsigur á heimavelli gegn botnliði hefði ekki gefið tilefni til að blóðga eitthvað af nýliðunum okkar á bekknum?
Jakob Byström klúðraði besta færi í heimi á 70 mínútu, einn gegn markmanni eftir stórkostlegan undirbúning Róberts og sama kæruleysi virtist ráðandi tveimur mínútum síðar þegar þeir Freyr og Róbert komust í dauðafæri sem rann út í sandinn. Fimm mínútum fyrir leikslok náðu þeir Fred, Már og Byström þó að fífla Þórsvörnina þar sem sá síðastnefndi skoraði 6:1 og Framarar unnu sinn stærsta deildarsigur frá því að við unnum Keflavík 5:0 sumarið 2009.
Frábær frammistaða allra í liðinu. Freyr var afbragðsgóður. Sigurjón verulega öflugur í vörninni og Halli virkilega sterkur. Maður leiksins að mati fréttaritarans var þó Kristófer sem lék í einhverri óskilgreindri stöðu í kvöld og var úti um allan völl. Næsti leikur er austurbæjarslagur gegn Valsmönnum. Þangað mæta allir góður menn.
Stefán Pálsson