Getraunaverktíðin hefst formlega næsta laugardagsmorgun kl 10 í Safamýrinni.
Allir FRAMarar eru hvattir til þess að byrja helgina snemma á laugardagsmorgnum. Koma við í Safamýrinni fá sér kaffi og með því, hitta aðra FRAMara og láta svo reyna á keppnisskapið og gáfurna í tippinu.
Áætlað er að hinn rómaði Getraunaleikur fari af stað núna í október og eru allir FRAmarar hvattir til að fylgjast með á heimasíðunni eða FRAM á facebook, en þar verður maðal annars utanlandsferð í verðlaun fyrir þá getspökustu.
Seðill helgarinnar
ÁFRAM FRAM!