fbpx
FRAMtvitt

FRAM er komið á Twitter!

FRAMtvitt
Hleypt hefur verið af stokkunum FRAMtísti, frétta- og atburðastreng FRAM á samfélagsmiðlinum Twitter.  Á FRAMtístinu verða flutt tíðindi af gangi mála í FRAMleikjum karla og kvenna í handbolta og fótbolta og birtar stuttar fréttir úr herbúðum félagsins.

FRAMtístið á sér heimili hér á heimasíðu félagsins, í glugga ofarlega til hægri á síðunni.  Í raun þarf ekkert að gera til að nálgast upplýsingastreymið þar annað en að heimsækja heimasíðuna, þessi streymisgluggi hefur ekkert með það að gera hvort notendur eru virkir á Twitter eða ekki.

FRAMtístið má líka setja upp á t.d. snjallsíma eða spjaldtölvu, en þá þarf viðkomandi að vera Twitter-notandi og fylgja FRAMtísinu, eða gerast “follower”.  Til þess að bæta FRAMtístinu í sarpinn sinn á Twitter þarf einfaldlega að leita að “framiceland” eða “framfc” og smella á “follow”.

Auðvelt og fljótlegt er að stofna Twitter-aðgang á Twitter.com og hægt er að nota þennan aðgang til þess að nálgast fréttastreymi eingöngu; umferðinni á strengnum stýrir eigandinn/notandinn algjörlega sjálfur og hann þarf auðvitað ekki að tísta, eða birta pósta, frekar en hann vill.  Við mælum með því að snjallsíma- og spjaldtölvunotendur sæki Twitter-smáforritið (appið) eða sambærilegan miðlara ef hann er ekki til staðar og skrái sig þar inn með notandanafni og lykorði.

Til eru nokkur forrit sem höndla Twitter-streymi á þægilegan hátt og bjóða jafnvel upp á fleiri möguleika en Twitter-smáforritið sjálft.  HootSuite heldur t.d. utan um Twitter, Facebook, Google+, Foursquare og MySpace svo fátt eitt sé nefnt, Seesmic býr að sömu kostum og hefur líkað vel í Android-símum (HootSuite keypti Seesmic fyrir skemmstu) og við nefnum hér einnig til sögunnar smáforrit á borð við Plume, Tweetcaster, Tweetbot, Tweetbird og Twitterific.

Share this post

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!