Námskeiðið er haldið af KSÍ í samvinnu við Fram og hefst kl. 18:30. Námskeiðið stendur í um tvær og hálfa klukkustund og er opið öllum sem náð hafa 15 ára aldri.
Á námskeiðinu er lögð aðaláhersla á knattspyrnulögin, en auk þess verður farið yfir ýmiss konar kynningarefni, fræðsluefni, skýringar og skýringarmyndir. Námskeiðinu lýkur með skriflegu prófi viku síðar.
Námskeiðsseta er ókeypis.
Sá sem lýkur unglingadómaraprófi hefur rétt ti að dæma í 4.flokki og neðar ásamt því að vera aðstoðardómari upp í 2.flokk.
Skráning er hafin á magnus@ksi.is