Karlalið FRAM í knattspyrnu mætir starfsbræðrum sínum úr Haukum í æfingaleik á FRAMvellinum í Úlfarsárdal á þriðjudaginn kemur, 23.apríl. Flautað verður til leiks klukkan 19.00.
FRAM lauk sem kunnugt er leik í Lengjubikarkeppninni sl. föstudag með því að leggja Víkinga að velli í Víkinni, 3-0. Leikur liðsins þótti með ágætum og sparkfróðir stuðningsmenn Safamýrarliðsins þykjast sjá að liðið er hægt og bítandi að styrkjast og eflast.
Keppni í Pepsi-deild karla hefst sunnudaginn 5.maí og fyrsti leikur FRAM er gegn Víkingi í Ólafsvík.