FRAM hafði í kvöld betur gegn ÍR, 4-1, í þriðju umferð 1.deildar kvenna í knattspyrnu og vann þar með sinn fyrsta deildarsigur á leiktíðinni. Staðan í hálfleik var jöfn, 1-1, en þrjú FRAMmörk í síðari hálfleik tryggðu sannfærandi sigur.
Lokamínútur fyrri hálfleiksins í Úlfarsárdalnum í kvöld voru fjörlegar. Lilja Guðrún Liljarsdóttir kom gestunum yfir á 39.mínútu, en Dagmar Mýrdal Gunnarsdóttir jafnaði metin rétt áður en flautað var til leikhlés. FRAM skoraði svo þrjú mörk í síðari hálfleik; Sara Lissy Chontosh kom FRAM í 2-1 á 58.mínútu, Dagmar bætti við öðru marki sínu og þriðja marki FRAM á 71.mínútu og Dagmar Ýr Atladóttir átti lokaorðið níu mínútum fyrir leikslok.