Krakkarnir í Handboltaskóla FRAM fengu heldur betur óvæntan glaðning í morgun þegar landsliðsmennirnir – og FRAMararnir – Rúnar Kárason og Björgvin Páll Gústavsson kíktu í heimsókn.
Þeir félagar gáfu sér góðan tíma með krökkunum, ræddu handboltann í sem víðustum skilnningi og mikilvægi þess að æfa samviskusamlega og tóku svo þátt í nokkrum æfingum. Þá fór dágóður tími í það að gefa eiginhandaráritanir.
[nggallery id=6]