fbpx
Fram-ÍR 201012-fors

ÍR-ingar eru meistarar meistaranna í karlaflokki

Fram-ÍR 201012Karlalið ÍR í handknattleik hafði betur gegn FRAM 30-25 í hinni árlegu Meistarakeppni HSÍ, þar sem eigast við Íslandsmeistarar og bikarmeistarar síðustu leiktíðar, og eru því Meistarar meistaranna.  Eftir jafnan fyrri hálfleik tóku ÍR-ingar öll völd í síðari hálfleik og sigldu heim nokkuð sannfærandi sigri.

Fyrri hálfleikurinn í leik FRAM og ÍR var jafn og spennandi, ungu mennirnir í FRAM létu talsvert að sér kveða og góður gangur var á leik liðsins.  FRAM hafði lengstum undirtökin og náði mest þriggja marka forystu, en ÍR-ingar bitu frá sér á lokamínútum hálfleiksins og komust yfir 14-13 áður en Sigurður Þorsteinsson jafnaði metin í blálokin og í hálfleik stóðu leikar jafnir, 14-14.
ÍR-ingar hófu síðari hálfleikinn af ógurlegum krafti, færðu vörnina sína framar og slógu þar með vopn úr höndum FRAMara, auk þess sem Björgvin nokkur Hólmgeirsson minnti á að hann er að öðrum ólöstuðum besti sóknarmaðurinn í íslenska boltanum í dag.  FRAM skoraði ekki mark fyrr en eftir rúmlega tólf mínútna leik í síðari hálfleik og ÍR-ingar höfðu þá náð sex marka forystu, sem einfaldlega var of stór biti til að kyngja.  FRAMarar héldu í horfinu á lokakaflanum og sýndu á tíðum snotur tilþrif, en fundu þó fáar leiðir til að eiga við framliggjandi og árásargjarna vörn bikarmeistaranna.  Lokatölur urðu eins og áður segir 30-25 fyrir ÍR og í raun er ekkert hægt að agnúast yfir þessari niðurstöðu.  FRAMarar litu ljómandi vel út í fyrri hálfleik, en vantaið bæði reynslu og samæfingu til að bregðast við útspilum ÍR-inga í síðari hálfleik.  Efniviðurinn er vissulega til staðar og liðið á eftir að spjara sig ágætlega í vetur.

Mörk FRAM: Stefán Darri Þórsson 6 (1 víti), Stefán Baldvin Stefánsson 5, Sigurður Örn Þorsteinsson 5, Garðar B. Sigurjónsson 3, Sveinn Þorgeirsson 3, Ólafur Magnússon 2, Ragnar Kjartansson 1.
Varin skot: Stephen Nielsen 15 (1 víti), Svavar Már Ólafsson 3.
Mörk ÍR:  Björgvin Hólmgeirsson 11, Sigurjón Friðbjörn Björnsson 5, Arnar Birkir Hálfdánarson 4, Daníel Ingi Guðmundsson 3, Sturla Ásgeirsson 3 (1 víti), Jón Kristinn Björgvinsson 1, Davíð Georgsson 1.
Varin skot: Arnór Freyr Stefánsson 14, Kristófer Fannar Guðmundsson 1.

Share this post

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!