Úlfur Blandon hefur skrifað undir samning sem aðstoðarþjálfari Bjarna Guðjónssonar hjá Fram. Úlfur er 34 ára gamall Reykvíkingur. Hann þjálfaði um árabil yngri flokka hjá Fylki og Stjörnunni þar sem hann var m.a. afreksþjálfari knattspyrnudeildar. Undanfarin tvö ár hefur Úlfur verið yfirþjálfari yngri flokka hjá Gróttu. Hann mun í vetur klára UEFA A þjálfaragráðu og hefur þar með full réttindi til að stýra liði í úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Fram býður Úlf Blandon velkominn til