Stelpurnar okkar í 4. fl.kv. urðu í dag Coka Cola bikarmeistarar HSÍ í handbolta. Stelpurnar voru gríðarlega flottar í leiknum í dag og gáfu andstæðingnum engin grið strax frá upphafi. Stelpurnar náðu strax forskoti í leiknum og litu aldrei um öxl. Staðan í hálfleik 12 -4. Leikurinn breyttist lítið í þeim síðari og yfirburðir FRAM stúlkna miklir í þessum leik. Lokatölur urðu 21-13. Frábær leikur hjá stelpunum okkar og allir lögðu sitt af mörkum í dag. Maður leiksins var valin Mariam Eradze leikmaður Fram en hún átti frábæran leik og skoraði 6 mörk. Hér við hliðina er mynd af Mariam og Elísabetu Mjöll en báðar lékur þær frábærlega í dag.
Til hamingju stelpur og njótið dagsins, þið voruð allar frábærar í dag.
ÁFRAM FRAM
Fullt af myndum munu koma á vefinn hans Jóa Kristins í dag eða á morgun, fylgist með. http://frammyndir.123.is/