fbpx
O

FRAM sigraði Víði í æfingaleik í Garðinum

OStrákarnir í mfl. ka fóru suður með sjó í dag og léku æfingaleik í Garðinu gegn Víði.  Það var smá spenna fyrir leikinn enda fyrsti leikur okkar mann á grasi þetta árið.   Leikurinn var ágætlega fjörugur í fyrri hálfleik og staðan í hálfleik 1-2 fyrir FRAM.  Það var svo aðeins meira fjör í seinni hálfleik en þá voru gerð 5 mörk til viðbótar og lokatölur í Garðinum í dag 2-6.  Mörk FRAM í dag gerðu Guðmundur Magnússon 2 mörk, Einar Már 2 mörk og þeir Hafþór Mar og Alexander með sitt markið hvor.   Nú vonum við bara að grasið fari að gróa í Borginni og við getum farið að æfa á grasi en algjörlega er óvíst með hvort við leikum á grasi fyrstu leikina á Íslandsmótinu  en verið er að vinna í þeim málum og vonum að það fari að vora þetta sumarið.

ÁFRAM FRAM

 

Share this post

Share on facebook
Share on twitter
Share on linkedin
Share on pinterest
Share on email
Karfa0
There are no products in the cart!
Halda áfram að versla
0