Uppskeruhátíð yngri flokka FRAM í handbolti í Grafarholti og Úlfarsárdal var haldinn í Ingunnarskóla í gær. Fjölmenni var eins og alltaf. Farið var yfir árangur allra flokka og veittar viðkenningar þó með breyttu sniði eins og áður hefur komið fram.
Hátiðin tókst vel að vanda og hér má sjá nokkrar myndir úr Ingunnarskóla í gær.
Svona að lokum viljum við þakka öllum þeim sem komu að starfinu með okkur í vetur. Veturinn var góður og nálægt 500 börn og unglingar hafa æft handbolti með FRAM sem er glæsilegt. Svo vonumst við eftir að sjá alla aftur í haust en æfingar byrja aftur 1. sept. Njótið sumarsins.
Unglingaráð FRAM.
Handbolti er skemmtilegur