Dagana 20. apríl – 14. maí verður Knattspyrnuakademía FRAM með námskeið á FRAMvellinum í Úlfarsárdal þar sem lögð verður áhersla á einstaklingsþjálfun þar sem æft er í litlum hópum og er þjálfari á hvern hóp. Hópunum verður skipt eftir leikstöðum, getu og aldri til að tryggja að hver og einn fái sem mest út úr æfingunni.
Farið verður yfir helstu tæknilegu atriði knattspyrnunar t.d. skottækni, sendingar, móttökur og gabbhreyfingar.
Þjálfarar á námskeiðinu verða Agnar Þór Hilmarsson, Haukur Hilmarsson, Steinar Ingi Þorsteinsson og Vigfús Geir Júlíusson, allt starfandi þjálfarar hjá FRAM.
Eldri hópurinn (1999-2002) verður mánudaga, miðvikudaga og föstudaga kl. 6:30-7:30.
Verð kr. 10.900- með hressingu.
Yngri hópurinn (2003-2006) verður þriðjudaga og fimmtudaga kl. 6:30-7:30.
Verð kr. 9.900- með hressingu.
Skráning og nánari upplýsingar á skráningarsíðu FRAM. Skráningu lýkur föstudaginn 17.apríl.