fbpx
FRAM Open 2015 vefur

FRAM Open 7. ágúst skráning er hafinn

FRAM Open 2015FRAM Open hefur í gegnum tíðina einkennst af gleði, glaumi og snilldartilþrifum lærðra sem leikinna. Mótið er opið öllum FRÖMurum og velunnurum félagsins og stemmningin sem skapast hefur gerir það að verkum að gefa mætti út ríkisábyrgð fyrir skemmtilegum félagsskap.

FRAM Open 2015 fer fram á golfvellinum Öndverðarnesi föstudaginn 7. ágúst og hefst klukkan 11:00.  Hyggilegt er að þátttakendur séu mættir á svæðið u.þ.b. hálftíma fyrr. Ræst verður út á öllum teigum kl. 11:00.

Skráning er hafin í síma 533-5600 eða á ludvik@fram.is / toti@fram.is
Athugið að það sem koma þarf fram í skráningu er:
Nafn leikmanns
Kennitala leikmanns
Forgjöf leikmanns 
Ósk um að leika í holli með ?

Keppnisgjaldið er kr. 8.500.- og þarf að greiða við skráningu.
Innifalið er mótsgjald og matur eftir mót. (lambalæri, konfekt/kaka og kaffi).

Vekjum athygli á því að þetta kvöld er heimaleikur hjá FRAM í Úlfarsárdal,  FRAM – Haukar kl. 19:15.
Því er mikilvægt að byrja tímanlega þannig að þeir sem vilja mæta á leikinn komist í bæinn á réttum tíma.

Knattspyrnufélagið FRAM

Share this post

Share on facebook
Share on twitter
Share on linkedin
Share on pinterest
Share on email
Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!