Knattspyrnudeild FRAM og Ásmundur Arnarsson hafa náð samkomulagi um að Ásmundur taki við þjálfun karla liðs FRAM í knattspyrnu. Samningurinn er til þriggja ára og ljóst að það er mikill fengur fyrir félagið að fá Ása til starfa.
Ásmundur hefur viðtæka reynslu af þjálfun, hefur verið starfandi þjálfari síðastliðin 10 ár. Ásmundur hóf þjálfun árið 2005 þegar hann tók að sér þjálfun Völsungs en Ásmundur er uppalinn á Húsavík.
Ásmundur lék með FRAM í 5 ára frá 1997-2002 þegar hann hélt á heimaslóðir og lauk ferlinu þar.
Knattspyrnudeild FRAM fagnar komu Ásmundar til FRAM og bindur miklar vonir við starf hans fyrir félagið á komandi árum.
Knattspyrnudeild FRAM