fbpx
Supuvefur

Súpufundur FRAM, föstudag 29. jan. kl. 12:00 í veislusal FRAM Safamýri

IMG_3322Ágætu Framarar

Nú er komið nýtt ár og við ætlum að halda áfram að hittast yfir súpudisk, fjórði súpufundur vetrarins verður á föstudag 29. jan. Það var góð mæting í síðasta súpuhádegi en um 60-70 manns mættu og almenn ánægja með hvernig til tókst. Heilmikið spjallað og létt yfir mannskapnum.
Við fengum þjálfara meistaraflokka karla í handbolta í heimsókn og hver veit nema að nýr þjálfari mæti og fari yfir stöðu mála.
Boðið verður upp á súpu og brauð eins og venjulega.
Ekki er ætlunin að hafa þetta formlegt heldur kjörin vettvangur fyrir okkur Framara til að hittast yfir súpuskál og ræða saman.
Verðinu verður stillt í algjört hóf eða eingöngu á kostnaðarverði kr. 500.-

Fjórði fundurinn í  súpuröðinni verður föstudaginn 29. janúar  kl. 12.00-13.30 í hátíðarsal okkar í Safamýri.
Heiðursgestur og frumstofnandi að súpuhádeginu er og verður Hörður „ Castró“ Einarsson.

Hvetjum alla FRAMara til að mæta og hjálpa okkur að láta fleiri vita af þessari velheppnuðu uppákomu.

Kveðja Knattspyrnufélagið FRAM

 

Share this post

Share on facebook
Share on twitter
Share on linkedin
Share on pinterest
Share on email
Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!