Hrafnhildur Skúladóttir og Stefán Arnarson landsliðsþjálfarar Íslands U-16 kvenna í handbola hafa valið 28 stúlkur til æfinga helgina 18 – 20. mars. Fyrsta æfing hópsins verður föstudaginn 18. mars kl.20.00 í Kórnum. Við FRAMarar eru stoltir af því að eiga tvo fulltrúa í þessum æfingahópi. Þær sem voru valdar frá FRAM að þessu sinni eru:
Erna Guðlaug Gunnarsdóttir Fram
Lena Valdimarsdóttir Fram
Gangi ykkur vel stelpur.
ÁFRAM FRAM