Við FRAMarar héldum í dag súpufund númer sex þennan veturinn og súpan var í samræmi í daginn. Okkur telst til að það hafi verið rúmlega 60 menn og konur sem gæddu sér á þessari líka fínu súpu. Það var virkilega skemmtilegt að sjá alla þessa FRAMarar á öllum aldri rifja upp gamla daga og ræða málefni dagsins. Létt yfir fólki enda farið að vora.
Við fengum ekki til okkar gest í dag vegna forfalla en ætlum að halda áfram á þeirri braut og fáum örugglega heimsókn á næsta fund.
Það er von okkar að við sjáum alla þá sem komu í dag og enn fleiri þegar við höldum næsta fund sem verður föstudaginn 29. apríl 2016. Hvetjum alla FRAMara til að mæta og hjálpa okkur að láta fleiri vita af þessari velheppnuðu uppákomu.
Takk fyirr komuna
ÁFRAM FRAM