Meistaraflokkur FRAM í knattspyrnu karla mun leika heimaleiki liðsins í 1.deild á Laugardalsvelli á komandi leiktíð.
Vegna framkvæmda á svæði Fram í Úlfarsárdal og annara þátta stenst keppnisleikvangur félagsins ekki leyfiskröfur KSÍ og fyrirsjánlegt er að ekki er hægt að uppfylla þær kröfur á meðan á framkvæmdum stendur.
Hefur KSÍ því hafnað beiðni Knattspyrnufélagsins FRAM um að leika meistarflokksleiki í 1.deild karla í Úlfársárdal á komandi keppnistímabili.
Á meðan framkvæmdum stendur mun Fram því leika á Laugardalsvelli. Einstaka leikir meistaraflokks karla munu fara fram í Úlfarsárdal eins og leikir í Lengjubikar og fyrstu leikir í bikarkeppni KSÍ en þeir leikir falla ekki undir jafn strangar reglur í leyfiskerfi KSÍ.
FRAM mun eftir sem áður sinna því mikla og góða starfi sem rekið er í Úlfarsárdalnum af fullum krafti og nýta þá aðstöðu sem þar er þegar til staðar.
Rétt er að taka það sérstaklega fram að félagið mun spila alla heimaleiki félagsins Úlfarsárdal þegar framkvæmdir við svæði félagsins eru komnar á það stig að félagið geti uppfyllt þær kröfur sem gerðar eru til þess m.a. í leyfiskerfi KSÍ.
Aðalstjórn Knattspyrnufélagsins FRAM