Meistaraflokkslið okkar FRAMara kvenna í fótbolta hefur fengið mikin liðstyrk.
Á dögunum gengu til liðs við FRAM fjórir leikmenn frá Akranesi. Þetta eru þær Svandís Guðbjörg Karlsdóttir, Lúísa Heiður Guðnadóttir, Alexía Mist Baldursdóttir, Andrea Ýr Reynisdóttir. Allar eru stelpurnar fæddar árið 1999 og hafa alla tíð leikið með ÍA. Stelpurnar hafa leikið tvo leiki með FRAM og munu leika með liðinu í sumar hið minnsta.
Við FRAMarar bjóðum stelpurnar innilega velkomnar til félagsins.
ÁFRAM FRAM