Lokahóf handknattleiksdeildar FRAM var haldið í gær með pomp og prakt. Boðið var upp á veitingar, veislumatur framreiddur af Sigga Tomm og Gumma Kolbeins. Ekki í fyrsta sinn sem þeir tveir mæta og hrista eitthvað gott fram úr erminni, ómetanlegt að hafa svona fólk innan raða FRAM.
Eftir matinn voru veitt verðlaun fyrir áfangaleiki og þeir voru þó nokkrir að þessu sinni.
Sjö leikmenn fengu viðkenningu fyrir að hafa leikið 100 leiki fyrir FRAM en þau voru:
Ragnheiður Júlíusdóttir
Elfa Þóra Arnardóttir
Írís Kristín Smith
Kristín Helgadóttir
Elías Bóasson
Sigurður Örn Þorsteinsson
Stefán Darri Þórsson
Ásta Birna Gunnarsdóttir fékk svo viðurkenningu fyrir að hafa leikið 400 leiki fyrir FRAM og geri aðrir betur. Hreint magnað að hafa svona leikmann innan félagsins og hennar framlag til FRAM seint þakkað.
Síðan var tilkynnt um val á leikmönnum ársins í karla og kvenna flokki.
Besti leikmaður mfl. kvenna Ragnheiður Júlíusdóttir
Efnilegasti leikmaður mfl.kvenna Hulda Dagsdóttir
Mikilvægasti leikmaður mfl. kvenna Steinunn Björnsdóttir
Besti leikmaður mfl. karla Þorgrímur Smári Ólafsson
Efnilegasti leikmaður mfl. karla Óðinn Þór Ríkharðsson
Mikilvægasti leikmaður mfl. karla Arnar Freyr Ársælsson
Síðan voru viðkenningar til þeirra mörgu sjálfboðaliða sem komu að starfinu í vetur, algjörlega ómetanlegt fólk og án þeirra væri starfið í FRAM erfitt.
Vel heppnað lokahóf handknattleiksdeildar FRAM, takk fyrir veturinn og takk fyrir mig.
ÁFRAM FRAM