fbpx
allir-verdlaun-vefur

Uppskeruhátíð unglingaráðs knattspyrnudeildar FRAM miðvikudaginn 2. nóv. kl. 17:30 í FRAMhúsi

IMG_3462Unglingaráð Knattspyrnudeildar FRAM heldur hina árlegu uppskeruhátíð sína miðvikudaginn 2. nóvember kl. 17:30 í veislusal FRAM Safamýri 26.

Nokkrir leikmenn 3.-5. flokks verða heiðraðir fyrir góða frammistöðu og framfarir.

Allir leikmenn 8.-6. flokks fá viðurkenningu og Eiríksbikarinn verður afhentur fyrir fyrirmyndarframmistöðu innan vallar sem utan.

Að verðlaunaafhendingu lokinni er iðkendum, þjálfurum og foreldrum boðið upp á veitingar.

Allir knattspyrnumenn FRAM eru boðnir velkomnir á hátíðina, svo og fjölskyldur þeirra.

Foreldrar eru sérstaklega hvattir til að koma með börnum sínum.

Hlökkum til að sjá ykkur.

Barna- og unglingaráð FRAM

Share this post

Share on facebook
Share on twitter
Share on linkedin
Share on pinterest
Share on email
Karfa0
There are no products in the cart!
Halda áfram að versla
0