fbpx
Meistaraflokkur kvenna 2016 vefur.

FRAM og Afturelding senda sameiginlegt lið til keppni í mfl.kvenna

Meistaraflokkur kvenna 2016.Knattspyrnudeild FRAM og Knattspyrnudeild Aftureldingar hafa gert með sér samkomulag um að senda sameiginlegt lið meistaraflokks kvenna til keppni á komandi keppnistímabili.
Viðræður um málið hafa staðið yfir um skeið en þessi tvö félög hafa átt í farsælu samstarfi með yngri flokka kvenna á síðustu árum.  Samningurinn er til þriggja ára,  nær yfir næstu þrjú keppnistímabil í fótbolta þannig félögin eru að horfa á samstarf og samvinnu til framtíðar.
FRAM og Afturelding eru þannig að mynda samfellu í starfinu með því að tengja félögin saman í kvenna fótboltanum frá yngri flokkum og upp í meistaraflokk. Sem er gríðarlega mikilvægt fyrir bæði félög.
FRAM og Afturelding sigldu lygnan sjó í 1. deildinni í sumar, léku ekki saman í riðli en enduðu bæði um miðja deild en taka nú sæti í 2. deild þar sem búið er að taka ákvörðum um að bæta við deild í meistaraflokki kvenna í sumar.  Í sumar verður því leikið í þremur deildum kvenna sem er nýtt og verður spennandi að sjá hvernig þessi sameiginlegi hópur FRAM og Aftureldingar mun spjara sig.  Það sem er alveg ljóst er að stefnan er tekin upp á við og við ætlum að spila í 1. deild að ári.
Virkilega spennandi verkefni sem við FRAMarar ætlum að leggja okkur alla í á næstu árum.

ÁFRAM FRAM

Share this post

Share on facebook
Share on twitter
Share on linkedin
Share on pinterest
Share on email
Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!