fbpx
Bikar-HAUKAR-FRAM

FRAM á þrjá flokka í bikarúrslitum yngri flokkar á sunnudag,

FRAM - HK 3.flFRAM - Valur 2017- Coke1 - 190913FRAM - Fylkir 2017 - Coke1 - 190913Bikarúrslit  Coka Cola bikarinn 2017
Yngri flokkar FRAM
Laugardalshöll sunnudag 26. febrúar

Það verður sannkölluð hátið hjá okkur í FRAM á sunnudag, því þá leikum við þrjá úrslitaleiki í bikarkeppni HSÍ,  Coka Cola bikarnum.  Leikirnir fara fram í Laugardalshöll en þar verður umgjörðin glæsileg og engu til sparað.

Það er alltaf draumur hvers leikmanns að komast í höllina og leika bikarúrslitaleik og þessir leikir eru þeir leikir sem allir yngri leikmenn vilja prufa að leika áður en þeir fara á stórasviðið með meistaraflokkunum.

Við FRAMarar eigum eins og áður sagði 3 leiki í Höllinni sunnudaginn 26. febrúar.  Leikið verður sem hér segir:

Kl. 14:00         Úrslitaleikur í 3. fl.kvenna  FRAM – HK  í Laugardalshöll

Kl. 16:00         Úrslitaleikur í 2. fl.karla  FRAM – Valur  í Laugardalshöll

Kl. 18:00         Úrslitaleikur í 4. fl.kvenna  Eldri.  FRAM – Fylkir  í Laugardalshöll

Hvetjum alla FRAMarar til að mæta í Höllina á sunnudag og hvetja krakkana okkar og styðja við bakið þessum glæsilegu fulltrúum sem við eigum í  úrslitaleikjum Coka Cola bikarsins.
Það verður
flott umgjörð í Höllinni, leggjumst öll  á eitt þannig að dagurinn verði sem glæsilegastur fyrir okkur FRAMara.

Þeir sem ekki komast í Höllina er bent á RÚV og RÚV2  en þeir munu sýna beint frá öllum leikjunum í Höllinni þennan dag.

ÞETTA VERÐA ALLIR AÐ SJÁ !

MÆTUM OG HVETJUM  UNGA FÓLKIÐ OKKAR  „TIL SIGURS“ !   ÁFRAM FRAM    

Unglingaráð Handknattleiksdeildar FRAM

 

Share this post

Share on facebook
Share on twitter
Share on linkedin
Share on pinterest
Share on email
Karfa0
There are no products in the cart!
Halda áfram að versla
0