fbpx
Erlendur og félagar

Vel mætt í súpuna í dag þrátt fyrir vont veður

SúpaVið FRAMarar héldum í dag fimmta  súpufund vetrarins. Mætingin í dag var gríðarlega góð  miðað við það sem við reiknuðum með enda veður heldur óyndislegt til útiferða. Okkur telst til að það hafi verið 50  menn og konur sem gæddu sér á þessari líka fínu súpu. Svakalega góð súpa í dag sem var að þessu sinni elduð á staðnum og af sérstakri natni.
Þökkum Gurrý og Lúðvík fyrir súpuna í dag, hún var góð.

Það er alltaf gaman að sjá alla þessa FRAMara á öllum aldri rifja upp gamla daga, ræða málefni dagsins.
Erlendur Magnússon bauð upp á bíósýningu sem vakti kátínu margra  og FRAM stelpur seldu miða á bikarleikinn á morgun.
Það er von okkar að sjá alla þá sem komu í dag og enn fleiri þegar við höldum næsta fund sem verður föstudaginn 31. mars 2017.

Hvetjum alla FRAMara til að mæta og hjálpa okkur að láta fleiri vita af þessari velheppnuðu uppákomu.

Takk fyrir samveruna í dag.

ÁFRAM FRAM

Share this post

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!