fbpx
Supuvefur

Súpufundur FRAM verður haldinn föstudaginn 28. apríl

Ágætu FRAMarar

Nú ætlum við að halda áfram að hittast yfir súpudisk, sjöundi súpufundur vetrarins verður á föstudag 28. apríl. Það var mjög góð mæting í síðasta súpuhádegi en rúmlega 80 manns mættu hressir og kátir í súpuna.
Heilmikið spjallað og létt yfir mannskapnum.

Boðið verður upp á súpu og brauð eins og venjulega.
Ekki er ætlunin að hafa þetta formlegt heldur kjörin vettvangur fyrir okkur Framara til að hittast yfir súpuskál og ræða saman.
Verðinu verður stillt í algjört hóf eða eingöngu á kostnaðarverði kr. 500.-

Sjöundi  fundurinn í  súpuröðinni verður föstudaginn 28.  apríl  kl. 12.00-13.30 í hátíðarsal okkar í Safamýri.

Við hvetjum alla FRAMarar til að koma í súpu  og endilega takið með ykkur félaga.
Kveðja Knattspyrnufélagið FRAM

Share this post

Share on facebook
Share on twitter
Share on linkedin
Share on pinterest
Share on email
Karfa0
There are no products in the cart!
Halda áfram að versla
0