Handknattleiksdeild FRAM hefur framlengt samninga sína við þá Þorgeir Bjarki Davíðsson og Þorsteinn Gauta Hjálmarsson. Samningar þeirra beggja voru framlengdir til ársins 2019 sem er gríðarlega mikilvægt fyrir félagið. Bæði Gauti og Þorgeir léku vel í vetur og hafa bætt sig gríðarlega og eru í dag máttarstólpar í meistaraflokksliði FRAM þrátt fyrir ungan aldur.
Þorsteinn Gauti spilaði 38 leiki með meistaraflokknum í vetur og skoraði 163 mörk fyrir liðið.
Þorgeir Bjarki spilaði alla leiki liðsins í vetur eða 40 talsins og gerði í þeim 138 mörk.
það verður því spennandi að fylgjast með Gauta og Þorgeir á komandi árum.
Handknattleiksdeild FRAM