Kári Garðarsson landsliðsþjálfari Íslands U-19 ára kvenna hefur valið þær 16 stelpur sem taka þátt í Scandinavian Open Championship í Helsingborg, Svíþjóð. Þar leikur liðið dagana 20 – 22. júlí gegn Noregi, Svíþjóð og Danmörku í þessu sterka móti.
Við FRAMarar erum stoltir af því að eiga fulltrúa í þessum sterka hópi en Ragnheiður Ósk Ingvarsdóttir var valinn frá FRAM að þessu sinni. Elísabet Mjöll Guðjónsdóttir og Heiðrún Dís Magnúsdóttir, voru ekki valdar í lokahópinn núna en verða til taks og munu æfa með hópnum fram að móti.
Ragnheiður Ósk Ingvarsdóttir Fram
Gangi ykkur vel.
ÁFRAM FRAM