Unglingaráð Knattspyrnudeildar FRAM heldur hina árlegu uppskeruhátíð sína þriðjudaginn 3. október kl. 17:30 í veislusal FRAM í Safamýri 26.
Nokkrir leikmenn 3.-5. flokks verða heiðraðir fyrir góða frammistöðu og framfarir.
Allir leikmenn 8.-6. flokks fá viðurkenningu og Eiríksbikarinn verður afhentur fyrir fyrirmyndarframmistöðu innan vallar sem utan.
Að verðlaunaafhendingu lokinni er iðkendum, þjálfurum og foreldrum boðið upp á veitingar.
Allir knattspyrnumenn FRAM eru boðnir velkomnir á hátíðina, svo og fjölskyldur þeirra.
Foreldrar eru sérstaklega hvattir til að koma með börnum sínum.
Hlökkum til að sjá ykkur.
Barna- og unglingaráð FRAM