fbpx
Supuvefur

Súpufundur FRAM verður haldinn föstudaginn 27. október

Ágætu FRAMarar

Nú ætlum við að halda áfram að hittast yfir súpudisk, annar súpufundur vetrarins verður á föstudag 27. október. Það var ekki  góð mæting í síðasta súpuhádegi, rúmlega 30 manns mættu en gaman hjá þeim sem komu að venju.  Þurfum að spýta aðeins í og minna FRAMara á að mæta, samt  létt yfir mannskapnum.

Boðið verður upp á súpu og brauð eins og venjulega.
Kjörin vettvangur fyrir okkur FRAMara til að hittast yfir súpuskál og ræða saman.

Verðinu verður stillt í algjört hóf eða eingöngu á kostnaðarverði kr. 500.-

Annar fundurinn í  súpuröðinni verður föstudaginn 27.  okt.  kl. 12.00-13.00 í hátíðarsal okkar í Safamýri.

Við hvetjum alla FRAMarar til að koma í súpu  og endilega takið með ykkur félaga.

Kveðja Knattspyrnufélagið FRAM

Share this post

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!