fbpx
Súpa vefur

Vel heppnuð súpa í dag

Við FRAMarar héldum í dag annan súpufund vetrarins. Mætingin í dag var góð en okkur telst til að mættir í dag hafi verið tæplega 70 manns. Súpan sérstaklega góð, kraftmikil og haustleg. Frábær súpa  Öddi !

Það er alltaf gaman að sjá alla þessa FRAMara á öllum aldri rifja upp gamla daga og ræða málefni dagsins. Ég verð bara að segja að þessir súpufundir eru gríðarlega vel heppnuð uppákoma.

Það er von okkar  að sjá alla þá sem komu í dag og enn fleiri þegar við höldum næsta fund sem verður föstudaginn 24. nóvember 2017. Það verður síðasti súpufundur okkar á árinu, við ætlum að taka súpufrí í des. en taka svo upp þráðinn aftur í janúar 2018.

Hvetjum alla FRAMara til að mæta og hjálpa okkur að láta fleiri vita af þessari velheppnuðu uppákomu. það má enn bæta við fólki og gaman að sjá enn fleiri í næstu súpu.

Takk fyrir samveruna í dag.

ÁFRAM FRAM

Share this post

Share on facebook
Share on twitter
Share on linkedin
Share on pinterest
Share on email
Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!