Við FRAMarar héldum í gær fjórða súpufund vetrarins. Mætingin í gær var góð en hefði samt viljað sjá aðeins fleiri, það voru rúmlega 50 FRAMarar sem mættu og enn erum við að sjá ný andlit sem er alltaf mjög skemmtilegt. Það segir okkur að hópurinn er enn að stækka. 70 manns.
Súpan frábær eins og venjulega. Hún klikkar ekkert.
Það er alltaf gaman að sjá alla þessa FRAMara á öllum aldri rifja upp gamla daga og ræða málefni dagsins. Ég verð bara að segja að þessir súpufundir eru gríðarlega vel heppnuð uppákoma.
Það er von okkar að sjá alla þá sem komu í dag og enn fleiri þegar við höldum næsta fund sem verður föstudaginn 23. Febrúar 2018.
Hvetjum alla FRAMara til að mæta og hjálpa okkur að láta fleiri vita af þessari velheppnuðu uppákomu. það má enn bæta við fólki og gaman að sjá enn fleiri í næstu súpu.
Takk fyrir daginn.
ÁFRAM FRAM